Gullkorn

2.4.2007

Grétar kemur lúinn og þreyttur inn eftir góða útiveru, búinn að hjóla og náttúrulega vera í leikskólanum.

Hann sagði: mamma, ég er alveg dauðútgefinn.

Oft kemur það fyrir að fólk spyr hvort þau systkyn séu tvíburar. Nei, þau eru það ekki, það eru 3 ár á milli.
Eitt sinn var spurt í frístundaheimilinu af starfsfólkinu: eruð þið tvíburar. Nei, svarar spekingurinn. En við mamma erum það. (Hvers vegna, jú við erum bæði fædd í júní).

1.8.2006.

Í nótt sváfu börnin í mömmurúmi, sem gerist afar sjaldan, hmm, hmm. í morgun þegar ég vakti Grétar og sagði honum að koma niður að bíða eftir pabba, eins og hann gerir alltaf sagði hann afar syfjulega: mamma, hvað er ég vanur að gera?

Í bílnum á leið í frístundaheimilið rak Steina augun í að Grétar sat í bílstólnum, svona eins og karlmenn sitja svo oft með fótinn uppi á öðru hnénu. Hún spurði hví hann sæti svona. Grétar svaraði frekar móðgaður: þú veist að karlmenn sitja alltaf svona og konur svona sagði hann um leið og hann krosslagði fæturnar.

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 3
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 28755
Samtals gestir: 13614
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 09:27:43